Við frá öllum hliðum... |
3 ára afmælisveisla BjartsHeilmikið af myndum frá afmlisdeginum hans Bjarts. Fékk gjafir frá Sunnu og Helgömmu um morguninn, bakaði köku á leikskólanum og fékk kórónu, fór út að borða með ma&pa, amma&afi komu og ég fékk pakka frá þeim og súkkulaðifondú. Síðan koma afmælisveislumyndirnar fljótlega ;) Skoða myndirnar eða líka er mjög gaman að opna sem slideshow. |
Maí 2007 - á SeyðisFórum á Seyðis um hvítasunnuhelgina. Veðrið var nú ekkert allt of gott en við höfðum það hins vegar afskaplega gott á Múlaveginum hjá Helgömmu og öllum hinum ;) Skoða myndirnar eða líka er mjög gaman að opna sem slideshow. |
Maí 2007 - fyrsti hlutiFyrri hluta maí skuppum við í heimsókn til Gauta og hittum fullt af fólki og lékum heilmikið. Kosningardagur rann upp og fóru mamma og pabbi með okkur á kjörstað þ.s. við hittum kisu. Sáum risessuna niðri miðbæ Reykjavíkur og hún og pabbi hennar voru búin að skera strætó. Ég fékk afmælisgjöfina snemma frá mömmu og pabba, var það hjól þannig að nú get ég hjólað með Svölu frænku. Fórum líka í Hellisgerði og ýmislegt fleira ;) Skoða myndirnar eða líka er mjög gaman að opna sem slideshow. |
Apríl 2007Í apríl fórum við á Seyðis yfir páskana og má finna myndir af ýmsu sem við gerðum okkur þar til dundurs. Sunna fékk að baða sig í balanum góða, við máluðum páskaegg og síðan fórum við að leita að þeim, fengum súkkulagði páskaegg og margt fleira. Einnig myndir frá sumardeginum fyrsta þar sem við fórum í göngu og horfuðum á skemmtiatriði niðri bæ. Ýmsar aðrar myndir einnig frá okkur í apríl ;) Skoða myndirnar eða líka er mjög gaman að opna sem slideshow. |
Mars 2007Mars liðinn og hérna eru myndir frá einhverjum uppátækjum okkar þá. Við fórum í Húsdýragarðinn með Óðni Braga og fjölskyldu, svona til að kveðja þau áður en þau fluttu til Svíþjóðar. Þau komu líka í heimsókn til okkar og Bjartur og Óðinn Bragi léku sér, fengu ís og horfðu á teiknimynd. Helgamma kom líka í heimsókn og lék við Bjart og Sunnu allan tímann :) Skoða myndirnar eða líka er mjög gaman að opna sem slideshow. |
Febrúar 2007Hérna eru myndir úr febrúarmánði. Nóg að gera að hitta fólk og leika okkur ;) Hérna má sjá okkur leika saman, við hittum Óðin Braga og Freyju Sif í afmælinu hans Óðins Braga og Bjartur sést uppklæddur sem gríslingur og að tromma inní herbergi :) Skoða myndirnar eða líka er mjög gaman að opna sem slideshow. |
Janúar 2007Loksins komu nýjar myndir. Mest myndir af Sunnu- og myndir af Bjarti knúsa Sunnu sína. Njótið vel ;o) |
2006 |
JólamyndirRosalega margnar myndir hérna: piparkökubakstur, laufabrauðsgerð, jólasveinar, Grýla, jólaboð, snjór bústaður, jólatréið skreytt, jólpakkarnir opnaðir og leikið með dótið...og bara endalaust af myndum ;) |
Skírnin hennar SunnuMyndir úr skírninni hennar Sunnu sem fór fram 19. nóvember. Síðan eru nokkrar myndir af henni í nuddi hjá pabba. Helgamma kom í heimsókn til okkar. Bjartur sést baka, gefa Binna brjóst og prakkarast og líka að vera góður við Sunnu systir sína og gefa henni dullu og láta Binna lúlla hjá henni :) |
StórfjölskyldanJæja, systa litla er kominn í heiminn og hérna er fullt af myndum af henni. Auk þess eru myndir af Bjarti að spila á gítar, spila á trommur. Svala og Ásthildur eru líka á nokkrum myndum og við öll saman. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að við höfum ekki verið dugleg að setja inn myndir eða fréttir, en vonandi fer nú að rætast úr því ;) |
Október 2006Ég er búinn að vera að leika mér helling í október og aðallega með pabba því að mamma var með litla systir í maganaum alveg þangað til 21. október en þá kom hún út úr maganum =) |
Litla barnið í maganum á mömmuHérna er hún mamma með litla barnið í magnaum...það fer alveg að koma ;) |
Ágúst - SeptemberÉg og pabbi að smíða rúm, Menningarnótt með Emil Gauta, leika við Óðinn Braga, spila á gítar með pabba, afmæli hjá Mána, skírn hjá Ásthildi Elvu og fjöruferð með ma&pa...ógó mikið að gera undanfarið ;) |
ÁgústSkapp í bústað með Svölu og Ásthildi sem var rosalega gaman. Síðan var ég að leika við Emil Gauta og hitti líka Júlíu Kristínu og nokkrar myndir af mér að grallarast heima fyrir ;) |
Sumarfrí - seinni hlutiSumarfríð hélt áfram á Seyðisfirði og seinni vikan var rólegri þ.s. allir voru farnir heim. Emilafi og Bjartur gróðursettu tréið hans Bjarts í garðinum og við kíktum á ættaróðalið út á Þórarinseyrinni. Aðallega myndir af Bjarti að dunda sér og einhver kunnugleg andlit með honum ;) |
Sumarfrí - fyrri hlutiSumarfríið var tekið út á Seyðisfirði í ár. Emil hélt uppá 80 ára afmælið( frá því í fyrra ) og allir mættu heim á Múlaveginn. Hérna eru myndir frá ferðalagi uppá Kárahnjúka og á Bjólfinn. Steinninn á leiðið hennar Cilli ömmu var loksins settur upp og svo eru ýmsar myndir af Bjarti á ferð á flugi. |
Helgarferð á SeyðisVið skuppum á Seyðis yfir helgi í júní svona aðeins til að hitta Helguömmu. Allt of langt síðan ég hafði hitt hana. Áttum að frá rosa gott veður en það var bara gott, en alveg nógu gott til að ég gat strípalingast út í garði á Múlaveginum ;) Myndir af mér að leika við marga krakka, horfa á stóra kranann hjá Braga, afmæli hjá Gústaf Bjarna o.fl. |
2ja áraEr ég ekki bara orðinn 2ja ára stór strákur. Ég bauð fullt af fólki í afmælisveisluna mína og hægt er að skoða boðskortið. Ekki komust allir, en það var nú alverg fullt af fólki og rosa gaman. Það tókst að smella nokkrum myndum þótt að ma&pa hefði verið mest upptekin að því að halda veisluna :) |
Fermingarveisla SjafnarFórum norðurá Ólafsfjörð í fermingaveislu hjá Sjöfn. Slatti af myndum frá Ólafsfirði og öllum sem við hittum þar. Nokkrar þegar við komum heim og ég fór í heimsókn til Óðins Braga og síðan þegar við pabbi vorum að leika okkur úti í sundlauginni á svölunum hjá okkur :) |
Páskar 2006Páskadagur hófst með því að opna páskaegg heima og borða það. Þurfti síðan að hlaupa og spríklast eftir allt gúkkulaðið( súkkulaðið ) áður en ég fór heim til ömmu&afa að leika meira og borða um kvöldið :) |
Mars 2006Hérna eru þónokkrar myndir af mér og Óðni Braga vini mínum. Hann kíkti í heimsókn til mín og við lékum okkur heilmikið, hlupum í hringi og eltum hvorn annan. Síðan eru líka myndir af okkur þegar við fórum með foreldra okkar í bústað og þar fórum við í heitapottinn og bjuggum til hús í kojuherberginu áður en að Ásdís og Þóra komu á laugardeginu. Líka einhverjar myndir af mér að leika mér =) |
Febrúar 2006Loksins setti pabbi inn nýjar myndir, hann er búinn að vera eitthvað upptekinn undanfarið og lítið verið tekið af myndum. En hérna eru nokkrar sem hafa verið teknar á nýju ári, maður er nú alltaf að grallarast eitthvað, hér eru meðal annars nokkrar veikindamyndir af mér og þegar Svala kom í heimsókn til mín =) |
Jól & Áramót 2005Jólin voru haldin heima í Hafnarfirðinum hjá afa&ömmu og var rosalega gaman hjá mér. Fékk eldavél frá mömmu&pappa sem ég var/er duglegur að leika mér í og fullt af fleiri flottum gjöfum. Síðan fórum við til Helgömmu á Seyðisfjörð um áramótin og hittum fullt af fólki og þar var nú líka gaman að sjá flugeldana. |
Snjór á SeyðisVið skruppum austur til Helgu ömmu og fleiri fyrir austan og það var SNJÓR þegar við komum...ekkert smá gaman að leika sér úti í snjónum =) Hitti Ara Björn og við fórum í íþróttatíma og lék mér við alla á Múlaveginum...rosalega gaman að hitta allar fyrir austan =) |
OktóberAmælisveisla hjá vini mínum honum Þorbergi Níels. Helga amma kom og passaði mig í heila viku og það var sko dekur. Afmælisveisla hjá Svölu stóru frænku minni. Þannig að það er nóg að skoða í þessu albúmi =) |
September 2005Veðrið var gott í september og nóg að gera, útiferðir, afmæli hjá Sinda Robert sem varð eins árs um daginn og alltaf verið að leika sér...og baða sig... |
Ágúst 2005Eitthvað samansafn af myndum af mér í ágúst, ýmis uppátæki og kíkti í afmælisveislu til Bekku ömmu... |
Skrúðganga á hinsegin dögumNokkrar myndir frá skrúðgöngunni sem farin er niður Laugarveginn í Reykjavík á hinsegin dögum, það var nú fullt af fólki þarna í alskonar búningum |
Verslunarmannahelgin 2005Við fjölskyldan fórum á Eina með öllu á Akureyri og fengum fínasta veður og höfðum það mjög gott, hérna eru nokkrar myndir, en við vörum svoldið löt við að taka myndir... |
Góðviðri í júlíEnn meira gott veður lét sjá sig í júlí, þannig að það var kíkt í heimsókn í bústaði og spókað sig úti í garði við öll tækifæri :) |
Gaman í júníFerðalög, afmæli og gott veður í júní, alltaf nóg að gera í góðu veðri :) |
Húsdýragaður og vinirÉg og Ari Björn vinur minn kíktum í Húsdýragarðinn með foreldra okkar og það var heilmikið stuð á okkur félögum, síðan hitti ég fleiri vini í þessu myndaalbúmi :) |
BústaðurVið krílin fórum í bústað í Hraunborgum í viku og gerðum heilmikið, það var fullt af fólki fyrstu helgina og gestir alla vikuna. Við fórum í Slakka, skoðuðum Gullfoss&Geysi og Sólheima, auk þess að hafa það rosalega gott í sveitinni. |
Eins árs, 2. hlutiHúrra, þá er ég loksins orðinn eins árs. Afmælisveislan var haldin á Seyðisfirði hjá Helgu ömmu og þar vara rosa gaman í henni og komu bæði Ari Björn og Sól að leika við mig =) |
Eins árs, 1. hlutiAlveg að verða eins árs, smá forskot var tekið á afmælið með afmælisveislu heima hjá mér áður en ég fór austur á Seyðisfjörð að halda uppá afmælið mitt, þannig að þetta var í raun alvöru afmælisveisla svona viku fyrir tímann =) |
HvítasunnuhelginNokkrar myndir frá því um Hvítasunnuhelgina, ég eitthvað að spóka mig. Við fjölskyldan fórum niður að Læk að gefa fuglunum að borða brauð og síðan fórum við í mat til Halls afa og Sæunnar ömmu |
Ellefu mánaðaÞá er farið að styttast í eins árs afmælið =) Hérna eru loksins komnar nýjar myndir, búinn að vera upptekinn í veikindum og Helga amma kom líka í heimsókn til mín. Hér eru myndir af mér þegar ég var veikur, að sýna hvað ég er klár að lesa, að leika við Óðin Braga vin minn og ýmislegt fleira. |
Tíu mánaða - Páskar á SeyðisJæja, hérna eru myndir frá ferðalaginu okkar um páskana. Við fórum í byrjun dimbilviku norðurá Mývatn og gistum hjá Gústafi Bjarna og Emil Gauta. Síðan var brunað á Seyðis og vorum þar í viku. Heilmikið stuð í góðu veðri |
Níu og hálfs mánaðaNokkrar myndir áður en ég verð 10 mánaða, hérna er ég að leika mér út um allt, ég er nú oft duglegur að leika mér og margir duglegir að leika við mig =) |
Níu mánaðaHérna má sjá myndir af mér og kærustunni minni, henni Kristrúnu Ríkey. Við hittumst alltaf á fimmtudögum :) Hérna eru líka myndir frá því að Ari Björn vinur minn kom í heimsókn, það var svaka stuð hjá okkur félögunum. Síðan eru nokkrar myndir þegar ma&pa fórum með mig út fyrir bæinn í smá myndatöku í sólinni og pabbi var sérstaklega hrifnn af Gollum myndinnni af mér þar sem ég er að gretta mig =) |
Átta og hálfs mánaðaStyttist óðum í 1. afmælið mitt... sem verður haldið á Seyðis hjá Helgu ömmu í sumar...kanski verður þér meira að segja boðið. En hér eru nokkrar myndir af mér að standa, og borsa, og leika mér =) |
Átta mánaðaEr hann litil ég ekki bara orðinn 8 mánaða, þetta er nú fljótt að gerast Fullt af myndum af mér að leika mérSkoða myndirnar |
Sjö & hálfs mánaðaHérna eru nokkrar myndir af mér í sundi, en nú er ég búinn með 1.sta sundnámskeiðið mitt og smá pása fram að næsta. Líka heilmikið af myndum frá því að við fórum í bústað í afmæli til Lilju. |
Sjö mánaðaÞá er kallinn hann ég bara orðinn 7 mánaða hvorki meira né minna...reyndar meira núna þegar þú lest þetta, en þá þessum myndum var ég 7 mánaða( og eldri ). Hér eru myndir af mér að borða súkkulaði Fondue, að leika við pabba, og síðan líka myndir af nýja herberginu og mér að leika mér í því =) |
2004 |
Fyrstu jólin mínJæja, þá fékk ég loksins að taka utan af pökkunum. Það var nú aðallega fyrsti pakkinn sem ég tók utan af, en síðan var ég svo upptekinn að leika mér að ég hafði engan tíma til þess lengur =) |
Sex og hálfs mánaðaHérna eru nokkrar strákamyndir af mér og ég að sýna hvað ég er stór. Mamma og pabbi purfuðu um daginn að reyna að fá mig til að sýna hvað ég væri stór og ég gerði mér nú lítið fyrir og sýndi þeim það. Þau þurftu nú að endurtaka leikinn nokkuð oft( og í nokkra daga ) til að trú því að ég skildi hvað væri að gerast =) En ég geri þetta bara núna þegar mig langar að fá viðbrögð frá gamla fólkinu =) |
Sex mánaðaNú líður senn að fyrstu jólunum mínum og ég get ekki beðið eftir að ná í alla pakka og rífa utan af þeim. Ég er byrjaður að skríða svoldið um þannig að nú geta pakkar og aðrir farið að vara sig. |
Fimm og hálfs mánaðaHér eru myndir frá því ég fór á Seyðisfjörð á myrka daga. Einnig frá því ég fór í sund um daginn og þegar ég fór í bústað með Óðni Braga vini mínum...síðan eru einhverjar aðrar myndir af mér þarna á milli. |
Fimm mánaðaNú er ég bara orðinn rosa stór, alveg 5 mánaða gamall. Hérna eru nokkrar myndir af mér með vinum og vandamönnum. Allir eru rosa duglegir að prófa að halda á mér, en ég tek því nú svona mis vel eftir því hvernig ég er upplagður hverju sinni. Aðallega eru þó bara myndir af mér eitthvað að brosa og að leika mér :) |
Nítján viknaÞað var mikið að nýjar myndir komu inn, ég þarf nú að fá smá hjálp frá pabba til að setja inn myndir og hann er búinn að vera svo upptekinn að ekkert gerðist seinasta sunnudag, en nú er hann kominn aftur =) Hérna eru myndir af mér að sitja, og á klósettinu og að borða graut, en aðallega eru myndir mér og Steingrími vini mínum =) |
Sautján viknaTíminn heldur áfram að flúga, hvernig sem hann fer að því og nú er ég bara orðinn 17 vikna gamall Hérna eru ýmsar myndir af mér, ég að fljúga, ég töffari, ég að froskast, ég í flottu sundskýlunni minni og ýmsilegt annað skemmtilegt :) |
Fjögura mánaðaNú er hann litli ég bara orðinn 4 mánaða =) Hérna er nokkrar stóru stráka myndir af mér, myndir af mér í eldhússtólnum, baðmyndir og síðan bara myndir sem teknar eru í tíma og ótíma af foreldrum mínum :) |
Seyðis í septemberHérna er ég kominn til Seyðisfjarðar í fyrsta skipti Þetta eru myndir frá Emil langafa, Snorra frænda og Rakel frænku, en foreldrar mínir gleymdu myndavélinni, þau eru orðin svo gömul og gleymin ;) |
15 viknaStyttist í að ég verð 4 mánaða =) Þetta er nú bara fáar myndir af mér þarna, enda fórum við austur í þessari viku og myndir þaðan eru í næsta albúmi |
Þriggja mánaðaLoksins er ég formlega orðinn þriggja mánaða, þar sem þetta voru svo langir mánuðir í viku taldir tók þetta sinn tíma =) Hérna eru þónokkrar hlátursmyndir af mér, og myndir áður en ég fór í þriggjamánaðarsprautu og fleira |
Þrettánda vikaAlveg að verða 3ja mánaða...þótt ég sé meira en 12 vika =) Hérna eru skuggamyndir, grettumyndir, baðmyndir, fjölskyldumyndir, púllamyndir og fl. |
Tólfta vikaJæja, jæja, jæja, hérna eru komnar fullt af nýjum myndum af mér... Ég með Svölu, ég sveittur, ég í sturtu, ég að fara í heimsókn, ég á flugi og ég á menningarnótt, og ég í bjarnarbúningi... |
Ellefta vikaStyttist í að ég verð þriggja mánaða, en samkvæmt mánuðum er það nú ekki fyrr en eftir 3 vikur =) Bros, bað og útivistarmyndir eru hér |
Tíunda vikaSkemmtileg staðreynd að ég er aðeins 2 mánaða en á sama tíma 10 vikna =) Kroppamyndir eru helsta yrkisefni þessa ljóðræna myndaalbúms |
Tveggja mánaðaÞá er ég bara orðinn tveggja mánaða og stækka og stækkta og bosi meira og vill leika meira með hverjum deginum. Brosmyndir og ofurhetjumyndir eru aðalatriðið í þessu albúmi |
Sjö viknaAlltaf heldur maður áfram að stækka og nú er bara ein vika í að ég verð tveggja mánaða Hérna eru þónokkrar myndir af mér, reyndar mjög margar, og ég að brosa pínu og með gleraugu og meira að segja myndir af mömmu og pabba. |
SkírnÞann 11. júlí 2004 var ég skírður Bjartur og hérna má sjá myndir af mér, vinum og vandamönnum í skírninni og fleira skemmtilegt. |
Fimmta vikaÞá er maður bara orðinn meira en eins mánaða gamall. Í þessu albúmi má finna bros & grettumyndir og þarna má líka sjá mig í fanginu á Sól frænku. |
Fjórða vikanÞetta er nú búnar að vera skemmtilegar 4 vikur, sérstaklega þar sem babbi er búinn að vera heima, en nú fer hann að mæta aftur til vinnu. Í þessu albúmi má sjá mig í sólbaði og með Svölu frænku... |
Þriðja vikanJæja, nú styttist í að ég verð 1. mánaða gamall, og líka í það að ég verð skírður og allir fá að vita hvað ég heiti =) Hérna eru nokkrar myndir af mér með pela, og í sturtu með pabba o.fl. |
Önnur vikanHérna eru nokkrar myndir frá 2. vikunni minni, aðallega myndir af mér að spá og spekulera... |
Fyrsta vikanNú er ég búinn að vera heima í meira en viku, og bráðum tveggja vikna gamall. Hérna eru þónokkrar myndir sem teknar hafa verið á þessari fyrstu viku minni og má finna nokkrar góðar myndir af mér og einnig af okkur öllum, mér, mömmu og pabba saman =) |
Fyrstu dagaranirHérna er stutt yfirlit yfir fyrstu 3 dagana heima, búinn að fara í bað og byrjaður að fá mjólk og er bara nokkuð ánægður með lífið hjá mömmu og pabba =) |
NýkominnÖrfáar myndir eftir að ég kom í heiminn...svona rétt til að svala forvitnum vinum og vandamönnum =) |
Óléttan - annar hlutiJæja, þá eru það nokkrar myndir af vikutímabilinu 27. - 35. viku sem hérna má finna. Nú styttist óðum í að ég fari að láta sjá mig, en ætla nú að hafa það náðugt aðeins áfram á meðan pláss leyfir hérna í bumbunni hennar mömmu. Þau verða líka að vera búin að gera allt tilbúið áður en ég kem...kem ekki fyrr en ALLT er tilbúið .... eða næstum allt =) |
ÓlettanHérna eru komnar myndir af óléttunni fyrstu 27 vikurnar. Hérna má meðal annars sjá mömmu og pabba á leiðinni í 20. vikna sónar. Ýmsar óléttumyndir af mömmu þar sem ég læt nú lítið sjá af mér...mamma verður að fá smá athygli núna áður en ég kem. Pabbi er líka með sýningu á sinni samúðaróléttu, og síðan má finna myndir af mömmu í einhverjum hillbillí gallaóléttubuxum sem eru ekkert til að hrópa húrra fyrir, og komast líklega aldrei í tísku...og hafa aldrei verið...en þær eru ógó fyndnar. |
20. vikna sónarHérna er ég nú í algjöru aðalhlutverki, og má sjá mig herma eftir mömmu og pabba að þykjast vera að tala í gemsa. Einnig er ágætis heilmynd af mér þar sem ég sést frá toppi til táar. |