Sokkarnir mínir

Anga af táfýlu,
sem fælir fjendur frá.
Verja mig gegn kulda,
hvert sinn sem ég fer á stjá.

Tryggir mér og traustir,
bjóða góðan dag.
Aldrei hafa svikið mig,
ég tileinka þeim þetta lag.

Sokkarnir mínir,
eru rosalega fínir!




Sokkarnir mínir eru svartir,
eiga skilinn þvott.
Ég nudda úr þeim drulluna,
það finnst þeim voða gott.

Snjóhvítir með svörtum röndum,
teygðir upp að hnjám.
B ættir vel með lopaböndum,
til verndar mínum tám.

Sokkarnir mínir eru góðir.
Sokkarnir mínir eru hlýir.
Þeir eru orðnir svolítið snjáðir,
enda eru þeir ei nýir.