Partídýr

Hvar er partí hvar er stuð?
Hvar er eitthvað um að vera?
Er þetta algjört krummaskuð?
Ekkert hægt að gera!

Rokk og ról og fyllerí,
hvergi hægt að finna!
Verður eitthvað að gera í því!
Þessu verður að linna!

Því hann er partídýr

 


Greyið rassmus leiður er
haldinn partítremma.
Engin partí eru hér
og ekkert til að skemma.

Hvar kemst rassmus teiti í,
til að drekka og dópa.
Þvælist hann um borg og bý
drukkinn upp til hópa.

Því hann er partídýr

Rassmus fór ei hamförum.
Ég las það í blöðum,
að hann dó úr leiðindum,
Við að búa á Egilsstöðum.

Því hann var partídýr