Kvenremba

Hvað er það sem konur vilja?
Hvað er það sem konur skilja?
Hata konur kannski karla?
Það held ég varla!

Klæddu sig í rauða sokka!
Klipptu af sér ljósa lokka!
Réttindabaráttu fóru að hugsa um,
og ganga í buxum!

Konur eru líka menn!
Okkar tími er kominn!

Sjá þær eru lægra settar!
Vinna til síns jafna réttar!
Hætta heimilið að príða
og neita að hlíða!



Allt er orðið öfugsnúið!
Þannig er í pottinn búið!
Karlmenn grípa ei í taumahöldin,
þeir missa völdin!

Konur eru líka menn!
Okkar tími er kominn!

Anarkí og kaos ræður!
Stöndum saman berjumst bræður!
Stöðvun réttindabaráttu kvinna!
Þessu verður að linna !

En konur eru líka bara konur!