Hlunkurinn

Hlunkur, hlunkur, hver ert þú?
Sem hótar alla'ð berja.
Minnir mig á feita kú.

Hlunkur, hlunkur, illgjarn og sver,
alltaf fúll á móti.
Því er hann svona þrjóskur og sver?
Er hann kannski með heila úr grjóti!

Hlunkur - Hvað er að þér?
Hlunkur - Hvað viltu mér hlunkur?


Allir hafa gaman að,
hlunkinn stóra að ergja.
Þarf bráðum að ganga við staf.

Þver og þrjóskur, ægilegur,
feitur, heimskur, hlægilegur,
ógeðslega ógeðslegur,
hlunkurinn er rosalegur.

Hlunkur - Hvað er að þér?
Hlunkur - Hvað viltu mér hlunkur?