Ælum ælu

Förum í partí og drekkum okkur full.
D ópum okkur til helvítis mér líkar þetta sull.
F ólk býður brennivín og fólk býður dóp.
Kemst í vímu ókeypis ef ég fylgi þessum hóp.

Þetta er ljóta partíið fólk liggur út um allt.
Flestir dauðir um tólfleitið mér finnst það ekki svalt.
Brátt kemur löggan hendir öllum inní bíl.
Verst er fyrir lögguna að taka þennan skríl.

 


Ælum ælu
magasýra flæðir
Ælum ælu
magasýra bræðir
Ælum ælu
hvað er ég að gera
Ælum ælu
svona á það að vera

Fólkið fer að æsa sig sparkar og berst um.
Ælir yfir löggurnar í löggubílunum.
Löggan nennir þessu ekki hendir öllum út.
Svona endar dæmið þegar drukkið er af stút.